Tja... hvað get ég sagt?.... ekki humgmynd

Búið að vera hellingur að gerast en svona það helsta er að ég er að vinna verkefni með Vís sem verður farið með í framhaldsskólana, ég og fleiri einstaklingar sem hafa lent í alvarlegu bílslysi eru með í þessu verkefni, við erum bara nýbyrjuð þannig að þetta er ekki alveg komið í gang en það sem ég er búin að gera er að finna myndir af mér fyrir slysið sem bara venjulegur unglingur að lifa lífinu og svo myndir af spítalanum og endurhæfingunni. Þetta verður video og verður tekið upp viðtal við mig og líklegast förum við í þrengslin þar sem slysið var og tökum upp þar líka svo koma ljósmyndirnar inná það líka, svo verða myndir af mér í bílnum á slysstað og konan sem er að sjá um þetta fékk einmitt eina mynd frá rannsókna deild umferðaslysa til að sýna mér og það tók helling á að sjá hana

og þetta var samt ein skársta myndin en ég fæ að velja myndir sem fara í þetta þannig að það verður ekkert þarna sem ég vil ekki að aðrir sjái. Svo er meira að segja til video af þessu öllu en ég er ennþá að ákveða hvort ég hafi taugar í að sjá það

En það er nú bara gaman að gera þetta verkefni og ekkert nema sjálfsagt að gera allt sem ég get til að koma í veg fyrir alvarleg slys og vonandi hafa krakkarnir í skólunum e-ð til að hugsa um þegar þau eru búin að sjá þetta

En annars er ekki mikið að gerast svona sem er skemmtilegt að blogga um... bara alltaf að gera það sama og sjúkraþjálfun og allt það.
Var áðan heima hjá Ólöfu sem er vinkona mín frá Þórshöfn og þar voru nokkrir Þórshafnarkrakkar

Alltaf gaman að hitta þau en synd hvað við erum í litlu sambandi en vonandi fer það að vera meira

Komin 10 ár frá því að ég bjó þar VÁÁ!! Ætlaði sko að fara þangað á hverju sumri frá því að ég flutti og hvað haldiði að ég sé búin að fara oft??? ALDREI!

Verð að bæta úr því og hver veit nema maður skelli sér þangað í sumar

En í gær fórum við í bústað í svignaskarði, það var bara skyndiákvörðun, hittum vini Hafdísar og Lindu og þeir voru að fara og buðu okkur að koma og áður en við vissum af vorum við bara rétt hjá Borganesi í sumarbústað og það var sko aldeilis breytt plan frá því fyrr um daginn

Það var helvíti gaman og við fórum ekki að sofa fyrr en tíu um morguninn og þá vorum við nýkomin uppúr pottinum...aldeilis hressandi að fara í pottin kl 8 um morguninn



Sko mig! uppá háalofti


Morguninn eftir, ferskleikinn í fyrirrúmi
Svo eftir lítinn svefn fórum við í Borganes og fengum okkur að borða og stelpurnar voru eldhressar



En það entist ekki lengi

hehe

En svo var ég að fá mér hund...hún er algjört æði og heitir Dimma Grimma Kjullubangsi en þið megið kalla hana Dimma

Hún er þvílíkur kúrari og algjört æði. Hún eltir mig útum allt hús og hún verður alltaf að vera þar sem ég er sama þó að einhver annar sé hérna

og þegar ég er uppí sófa að þá kúrir hún og kúrir

Og þegar ég skil hana eftir heima þá verður hún sko ekki sátt og þegar ég skil hana eftir með einhverjum þá vælir hún þegar ég er farin



Svo er ég að fara til Eyja á morgun því það er verið að fara sprauta bílinn minn, já nýja bílinn minn

Hann var lyklaður um daginn og ég var sko ekki sátt!!

Veit ekki hvað ég verð lengi, en nokkra daga allavega. Er þá að fara til hjartalæknisins í leiðinni og vonandi kemur allt vel út í því

En jæja held þetta sé komið gott í bili...heyrumst